
Með fulla poka af rusli á Skallagrímsvelli. Ljósm. borgarbyggd.is
Hreinsuðu nánasta umhverfi skólans
Vikuna 13. – 17. maí síðastliðinn var hreinsivika í Grunnskólanum í Borgarnesi. Tiltektardagurinn ,,Tökum til hendinni“ er eitt af þeim verkefnum sem skólinn tekur sér fyrir hendur á vorin og felst í því að hreinsa nánasta umhverfi skólans. Svæðinu er þá skipt niður á milli bekkja og skipuleggja nemendur og kennarar hvernig þeir munu vinna verkið. Þau höfðu svo þessa viku til að klára svæðið sitt.