Bambinn dreginn áleiðis til lands. Ljósmyndir: Lífsbjörg

Bambi fór á flakk og rak áleiðis að Látrabjargi

Á mánudag barst beiðni til björgunarsveitarinnar Lífsbjargar um verðmætabjörgun en í óveðrinu sem geisaði á laugardaginn síðasta, hafði fríholt eða bambi losnað við Grundarfjarðarhöfn. Höfnin óskaði eftir því að sjófarendur hefðu augu með því en bambinn sást svo í gær og var þá tíu mílur SV af Látrabjargi og barst því beiðni frá Grundarfjarðarhöfn og Landhelgisgæslunni um að björgunarbáturinn Björg í Rifi færi af stað og næði í rekaldið. Fann áhöfninn bambann um 50 sjómílur frá Rifi en á FB síðu Lífsbjargar kemur fram að bambinn var dreginn til hafnar í Rifi og verður ekið með hann til heimahafnar í Grundarfirði.

Bambi fór á flakk og rak áleiðis að Látrabjargi - Skessuhorn