
Lið ÍA í keppni í gólfæfingum. Ljósm. Eyrún Reynisdóttir
Fimleikadeild ÍA sigursæl á Íslandsmóti
Um síðustu helgi var Íslandsmót í hópfimleikum og stökkfimi haldið á Seltjarnarnesi undir stjórn Fimleikadeildar Gróttu. FIMÍA átti stóran hóp keppenda, alls átta lið á mótinu. Keppt var í gólfæfingum, dýnustökki og á trampólíni en gólfæfingar þurfa að innihalda níu erfiðleikastig; fjögur jafnvægi, þrjú hopp og tvö heljarstökk; dýnustökk en þar verða keppendur að framkvæma að minnsta kosti þrjár samtengdar æfingar inn á stökkbrautinni. Á trampólíni þarf ein umferð að vera yfir hest, ein án hests og ein umferð má vera annað hvort yfir hest eða án.