
Mynd frá síðustu sýningunni á Diskóeyjunni. Ljósm. vaks
Diskóeyjan sló í gegn og var tekin upp til sýningar
Sýningum á Diskóeyjunni í uppfærslu nemenda í Brekkubæjarskóla á Akranesi lauk um síðustu helgi. Alls voru sýndar ellefu sýningar, uppselt var á níu þeirra og nánast fullt á hinar tvær. Síðasta miðvikudag kom tökulið frá kvikmyndafyrirtækinu Glassriver sem framleiðir kvikmyndir og sjónvarpsefni og tók sýninguna upp. Fyrirtækið hefur meðal annars séð um upptökur á kvikmyndinni Vonarstræti og þáttunum Venjulegt fólk, Svartir sandar og fleirum. Blaðamaður Skessuhorns hitti á þau Hjörvar Gunnarsson leikstjóra og Hafdísi Bergsdóttur sem var í framkvæmdastjórn í smá spjall fyrr í dag.