Fréttir

true

Frumsýna á morgun söngleikinn Diskóeyjuna í Bíóhöllinni – Umfjöllun og myndir

Nemendur í 8.-10. bekk í Brekkubæjarskóla á Akranesi frumsýna á morgun, fimmtudag, söngleikinn Diskóeyjuna í Bíóhöllinni. Í byrjun maí hófust æfingar í Bíóhöllinni og síðasta sunnudag fékk blaðamaður Skessuhorns að kíkja á æfingu. Hjörvar Gunnarsson og Gunnhildur Vilhjálmsdóttir eru leikstjórar verksins og voru til í létt spjall þegar hlé var gert á æfingum í smástund.…Lesa meira

true

Grunnskólum boðið að taka þátt í krakkakosningum

Umboðsmaður barna og Ríkissjónvarpið hafa ákveðið að standa fyrir sínum sjöttu Krakkakosningum á KrakkaRÚV, nú í tengslum við forsetakosningarnar sem haldnar verða 1. júní nk. „Með Krakkakosningum er börnum gefið tækifæri á að láta í ljós skoðanir sínar á frambjóðendum og er það í samræmi við það sem m.a. kemur fram í Barnasáttmálanum, samningi Sameinuðu…Lesa meira

true

Hvalfjarðargöng lokuð seint í kvöld vegna æfingar

Vegagerðin hefur tilkynnt um lokun á Hvalfjarðargöngum í kvöld, miðvikudaginn 15. maí frá klukkan 21.00-23.00. Þá mun fara fram brunaæfing í göngunum. Hjáleið verður um Hvalfjörð meðan lokunin varir. Fram kemur í tilkynningu að æfingin verður umfangsmikil en hún er á vegum Vegagerðarinnar, Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. „Lokanir verða við gatnamót Hringvegar…Lesa meira

true

Gleðigjafar luku vetrarstarfinu í Skálholti

Gleðigjafar, kór eldri borgara í Borgarnesi og nágrenni, lauk vetrarstarfinu laugardaginn 11. maí með þátttöku í kóramóti í Skálholti. Þar voru saman komnir fjórir kórar eldri borgara af Suðurlandi og voru borgfirsku Gleðigjafarnir gestir þeirra. „Mótið var ánægjulegt í alla staði. Eftir söng hvers kórs tók við samsöngur sem fyllti Skálholtskirkju, sem er dásamlegt tónleikahús.…Lesa meira

true

Fylgjast grannt með komu farfuglanna

Áralöng hefð er fyrir því í Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit að fylgjast með komu farfuglanna til landsins. Í hvert skipti sem ný tegund lendir í Hvalfjarðarsveit er sett upp mynd af fuglinum í skólanum. „Ansi margir farfuglar lentir hjá okkur núna eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Það gleður okkur mikið enda vitum við að…Lesa meira

true

Bónus á Akranesi valin verslun ársins

Á vorhátíð Bónus sem haldin var í Háskólabíó síðasta miðvikudag var verslun Bónus á Akranesi valin Bónusverslun ársins en það er gert einu sinni á ári út frá hverju rekstrarári. Þá fengu nokkrir starfsmenn hennar viðurkenningu fyrir vel unnin störf. Ástdís María Guðjónsdóttir vann titilinn Helgarstjóri ársins, Elvar Sigurjónsson fékk tilnefningu fyrir grænmetisstarfsmann ársins og…Lesa meira

true

Magnús Scheving aftur orðinn eigandi Latabæjar

Magnús Scheving er aftur orðinn eigandi Latabæjar. Magnús seldi vörumerkið, Lazy Town, til Turner-samsteypunnar árið 2011 og það rann síðan til Warnes Bros Discovery árið 2019. Á sínum tíma voru þættirnir með Latabæ sýndir í 170 löndum og náðu til 500 milljóna heimila. Þeir slógu áhorfsmet og unnu til fjölda verðlauna. Í gegnum fjárfestingarfélagið LZT…Lesa meira

true

Körfuknattleiksfólk Snæfells verðlaunað

Lokahóf Körfuknattleiksdeildar Snæfells fór fram í síðustu viku og voru viðurkenningar veittar fyrir tímabilið. Mikilvægasti leikmaður karla var Jaeden King, besti varnarmaður karla var Snjólfur Björnsson, besti ungi leikmaður karla var Sturla Böðvarsson og mestu framfarir voru hjá Magna Blæ Hafþórssyni. Hjá meistaraflokki kvenna var mikilvægasti leikmaður valin Shawnta Shaw, besti varnarmaður kvenna var Jasmina…Lesa meira

true

Stofnfundur Viðreisnar á Akranesi

Í gærkvöldi fór fram stofnfundur Viðreisnar á Akranesi og nágrennis í Breið nýsköpunarsetri. „Þar var góð mæting og enn betri umræður um tækifæri Viðreisnar á Akranesi. Edit Ómarsdóttir var kjörin formaður nýstofnaðs félags. Undir forystu Editar mun Viðreisn á Akranesi og nágrennis einsetja sér að vera leiðandi rödd frjálslyndis, jafnréttis, ábyrgrar hagstjórnar og almannahagsmuna á…Lesa meira

true

Alexander Schepsky nýr framkvæmdastjóri Gleipnis

Dr. Alexander Schepsky hefur verið ráðinn nýr framkæmdastjóri Gleipnis – Nýsköpunar- og þróunarseturs á Vesturlandi. Alexander er með bakgrunn í sameindalíffræði en hann hlaut doktorsgráðu sína frá Háskóla Íslands og stundaði postdoc rannsóknir við Marie Curie rannsóknarstofnunina í Bretlandi. Rannsóknir hans hafa verið birtar í fjölmörgum vísindatímaritum eins og Nature og Molecular Cell. Auk akademíska…Lesa meira