
Gleðigjafar ásamt stjórnanda sínum Hólmfríði Friðjónsdóttur (t.h.) Ljósm. aðsend
Gleðigjafar luku vetrarstarfinu í Skálholti
Gleðigjafar, kór eldri borgara í Borgarnesi og nágrenni, lauk vetrarstarfinu laugardaginn 11. maí með þátttöku í kóramóti í Skálholti. Þar voru saman komnir fjórir kórar eldri borgara af Suðurlandi og voru borgfirsku Gleðigjafarnir gestir þeirra. „Mótið var ánægjulegt í alla staði. Eftir söng hvers kórs tók við samsöngur sem fyllti Skálholtskirkju, sem er dásamlegt tónleikahús. Eftir mótið var drukkið kaffi í Aratungu í Reykholti þeirra Sunnlendinga,“ segir Hólmfríður Friðjónsdóttir stjórnandi kórsins.