
Ný stjórn félagsins ásamt forystufólki í Viðreisn. Ljósm. aðsend
Stofnfundur Viðreisnar á Akranesi
Í gærkvöldi fór fram stofnfundur Viðreisnar á Akranesi og nágrennis í Breið nýsköpunarsetri. „Þar var góð mæting og enn betri umræður um tækifæri Viðreisnar á Akranesi. Edit Ómarsdóttir var kjörin formaður nýstofnaðs félags. Undir forystu Editar mun Viðreisn á Akranesi og nágrennis einsetja sér að vera leiðandi rödd frjálslyndis, jafnréttis, ábyrgrar hagstjórnar og almannahagsmuna á Skaganum,“ segir í tilkynningu.