Hvalfjarðargöng. Ljósm. Skessuhorn

Hvalfjarðargöng lokuð seint í kvöld vegna æfingar

Vegagerðin hefur tilkynnt um lokun á Hvalfjarðargöngum í kvöld, miðvikudaginn 15. maí frá klukkan 21.00-23.00. Þá mun fara fram brunaæfing í göngunum. Hjáleið verður um Hvalfjörð meðan lokunin varir.

Fram kemur í tilkynningu að æfingin verður umfangsmikil en hún er á vegum Vegagerðarinnar, Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. „Lokanir verða við gatnamót Hringvegar og Hvalfjarðarvegar í Leirársveit og við gatnamót Hringvegar og Hvalfjarðarvegar á Kjalarnesi. Vegfærerndur eru beðnir um að taka tillit til þessa í ferðaáætlunum sínum.“

Hvalfjarðargöng lokuð seint í kvöld vegna æfingar - Skessuhorn