Fréttir

true

Hvannir hirtu bronsið í blaki

Öldungamót Blaksambands Íslands var haldið að Varmá í Mosfellsbæ um síðustu helgi og voru þar yfir 1300 þátttakendur af öllu landinu. Leikið var í deildum; 15 kvennadeildir og sjö karladeildir, en mótið hófst á fimmtudagsmorgun og lauk því á laugardagskveldi með veglegu lokahófi. Það voru þrjú kvennalið og eitt karlalið sem fóru úr Borgarfirði. Keppendur…Lesa meira

true

Viðburðastjórar ráðnir fyrir bæjarhátíðir á Akranesi

Akraneskaupstaður hefur lokið við ráðningu á nýjum viðburðastjórum fyrir bæjarhátíðirnar Írska daga og Þjóðhátíðardaginn 17. júní. Valdimar Ingi Brynjarsson og Hjörvar Gunnarsson voru ráðnir til starfa en þeir munu vinna náið með verkefnastjóra menningar- og safnamála, Veru Líndal Guðnadóttur. Valdimar var meðal annars einn af þeim sem rak Gamla kaupfélagið og hefur komið að fjölmörgum…Lesa meira

true

Stutt í að erlendir ríkisborgarar verði fimmtungur landsmanna

Alls voru 77.321 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi 1. maí síðastliðinn og fjölgaði þeim um 2.898 frá 1. desember 2023, eða um 3,9%. Ríkisborgurum frá Úkraínu og Palestínu heldur áfram að fjölga. Úkraínskum ríkisborgurum fjölgaði um 476 eða 12,1% og ríkisborgurum frá Palestínu fjölgaði um 144 eða 26,8%. Pólskum ríkisborgurum fjölgaði um…Lesa meira

true

Ungmenni hvött til háskólanáms og að „Taka stökkið“

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið hefur farið af stað með átaksverkefnið „Taktu stökkið.“ Markmið þess er að fjölga háskólanemum, ekki síst strákum, en rannsóknir sýna að umtalsvert færri útskrifast úr háskólum hér á landi en á öðrum Norðurlöndum. Lykilskilaboð átaksins í ár eru að fólk bíði ekki með háskólanám heldur taki stökkið og skrái sig í…Lesa meira

true

Fyrst lögregluembætta í Evrópu til að rafvæða bílaflotann

Í byrjun mánaðarins afhenti Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Kuðunginn – umhverfisviðurkenningu ráðuneytisins. Það voru Sorpa og Bambahús sem hlutu verðlaunin að þessu sinni fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á liðnu ári. Þá hlaut Lögreglan á Vesturlandi sérstaka hvatningarviðurkenningu dómnefndar fyrir framsýni og eftirtektarverðan samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Lögreglan á Vesturlandi lauk á…Lesa meira

true

Bekkpressumót til minningar um Héðin Magnússon – myndasyrpa

Síðastliðinn laugardag hélt líkamsræktarstöðin Sólarsport bekkpressumót í íþróttahúsinu í Ólafsvík. Mótið var haldið til minningar um Héðin Magnússon sjómann og kraftlyftingamann sem fórst í sjóslysi á Svanborgu SH 7. desember 2001. Alls voru 17 keppendur sem tóku þátt í mótinu sem verður haldið árlega hér eftir. Keppt var í þremur flokkum; kvennaflokki, karlaflokki undir 100…Lesa meira

true

Símaráðgjöf nú aukin í 1700 á Vesturlandi

Síðastliðið ár hefur verið unnið að því að bæta og samþætta þjónustu og ráðgjöf vegna veikinda og bráðra erinda með símaráðgjöf í síma 1700 sem Upplýsingamiðstöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) sér um að svara. Reynslan af símaráðgjöf 1700 sýnir að með sérþjálfuðu starfsfólki er hægt að leysa úr stórum hluta fyrirspurna með ráðgjöf í síma og…Lesa meira

true

Vinna milli mjalta við nýja fjósbyggingu

Á bænum Helgavatni í Þverárhlíð standa yfir framkvæmdir við byggingu nýs þúsund fermetra fjóss sem er áfast eldra fjósinu. Það eru bræðurnir Bjarki og Diðrik Vilhjálmssynir sem standa að verkinu, en þeir eru nú að taka við búi af föður þeirra, föðurbróður og eiginkonum þeirra. Þeir Bjarki og Diðrik segjast vinna að framkvæmdinni á milli…Lesa meira

true

Bátsverjum víða komið til hjálpar

Dagurinn hefur verið annasamur hjá áhöfnum björgunarskipa Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Rétt fyrir klukkan 9 í morgun voru björgunarsveitir frá Sauðárkróki og Hofsósi ásamt björgunarskipinu Sigurvin á Siglufirði kallaðar út vegna strandveiðibáts með óvirkt stýri. Björgunarbáturinn Skafti og björgunarskipið Sigurvin fóru á vettvang. Sigurvin dró svo bátinn til Siglufjarðar. Upp úr klukkan 15 var svo áhöfn björgunarskipsins…Lesa meira

true

Heimsfrægur hönnuður velur Breið á Akranesi fyrir hótel

Hinn heimsfrægi hönnuður og arkitekt, Philippe Starck, hefur valið Breiðina á Akranesi sem ákjósanlegan stað til að hanna á nýtt hótel. Fyrir um ári síðan birtist grein í Morgunblaðinu þess efnis að Starck væri að leita sér að lóð við sjávarsíðuna á Íslandi til þess að hanna „fallegasta hótel í heimi,“ eins og hann orðaði…Lesa meira