
Lögreglan á Vesturlandi fékk sérstök hvatningarverðlaun Kuðungsins. Ljósm. Stjórnarráðið
Fyrst lögregluembætta í Evrópu til að rafvæða bílaflotann
Í byrjun mánaðarins afhenti Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Kuðunginn - umhverfisviðurkenningu ráðuneytisins. Það voru Sorpa og Bambahús sem hlutu verðlaunin að þessu sinni fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á liðnu ári. Þá hlaut Lögreglan á Vesturlandi sérstaka hvatningarviðurkenningu dómnefndar fyrir framsýni og eftirtektarverðan samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda.