
Philippe Starck er einn fremsti hönnuður heims á sviði arkitektúrs.
Heimsfrægur hönnuður velur Breið á Akranesi fyrir hótel
Hinn heimsfrægi hönnuður og arkitekt, Philippe Starck, hefur valið Breiðina á Akranesi sem ákjósanlegan stað til að hanna á nýtt hótel. Fyrir um ári síðan birtist grein í Morgunblaðinu þess efnis að Starck væri að leita sér að lóð við sjávarsíðuna á Íslandi til þess að hanna „fallegasta hótel í heimi,“ eins og hann orðaði það. „Það er okkur sönn ánægja að segja frá því að eftir langa leit og fjölmargar ábendingar, hefur Philippe Starck nú valið Breiðina á Akranesi sem sinn fallegasta stað fyrir sína hönnun,“ segir Valdís Fjölnisdóttir framkvæmdastjóri Breiðar þróunarfélags í samtali við Skessuhorn.