
Símaráðgjöf nú aukin í 1700 á Vesturlandi
Síðastliðið ár hefur verið unnið að því að bæta og samþætta þjónustu og ráðgjöf vegna veikinda og bráðra erinda með símaráðgjöf í síma 1700 sem Upplýsingamiðstöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) sér um að svara. Reynslan af símaráðgjöf 1700 sýnir að með sérþjálfuðu starfsfólki er hægt að leysa úr stórum hluta fyrirspurna með ráðgjöf í síma og netspjalli. Þessa þjónustu hafa einstaklingar á starfssvæði Heilbrigðisstofnunar Vesturlands (HVE) nýtt sér í vaxandi mæli. Fimmtudaginn 16. maí verður stigið skref til viðbótar á heilsugæslustöðvum HVE í samvinnu við Upplýsingamiðstöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir, forstjóri HVE, segir í samtali við Skessuhorn að nýja verklagið byggi á tilraunaverkefni sem fór af stað með heilsugæslunni á Akureyri síðastliðið sumar og hefur gefið afar góða raun. „Bráð erindi verða flokkuð í gegnum síma 1700 og á netspjalli Heilsuveru fyrir komu á stöð. Þau sem þurfa, fá þá tíma samdægurs eða daginn eftir. Með þessu viljum við tryggja rétta þjónustu á réttum stað og réttum tíma. Þá mun þessi breyting spara skjólstæðingum tíma þar sem þeir geta fengið upplýsingar og ráðgjöf strax í stað þess að mæta beint á staðinn,“ segir Jóhanna Fjóla.
1700 símaráðgjöf
Hægt verður að hringja í 1700 allan sólarhringinn og að auki er netspjall opið frá klukkan 08 til 22 alla daga vikunnar. „Bráð erindi og ráðgjöf vegna veikinda fara í gegnum 1700 sem kemur þeim í réttan farveg innan heilsugæslustöðva HVE.“ Jóhanna Fjóla vekur athygli á að Neyðarsíminn er áfram 112 og er fólki bent á að hringja í það númer ef þörf krefur.
Vakin er athygli á að þau erindi sem EKKI verða afgreidd með því að hringja í 1700 varða lyfjaendurnýjun, að fá niðurstöður úr rannsóknum, ekki verða þar gefnir símatímar hjá læknum eða afgreiðsla vottorða og tilvísana. Fólk snúi sér áfram til HVE í síma 432-1000 með slík erindi.
„Til að styðja sem best við þessa breytingu verður símsvörun á HVE samræmd og breytt þannig að símsvarinn mun bjóða upp á val fyrir bráð erindi og ráðgjöf vegna veikinda sem gefur viðkomandi samband við 1700. Hægt er að komast á netspjall Heilsuveru sem birtist neðst í hægra horni á vefsíðunni heilsuvera.is, einnig á www.hve.is eða island.is/s/hve“