
Grunnskólum boðið að taka þátt í krakkakosningum
Umboðsmaður barna og Ríkissjónvarpið hafa ákveðið að standa fyrir sínum sjöttu Krakkakosningum á KrakkaRÚV, nú í tengslum við forsetakosningarnar sem haldnar verða 1. júní nk. „Með Krakkakosningum er börnum gefið tækifæri á að láta í ljós skoðanir sínar á frambjóðendum og er það í samræmi við það sem m.a. kemur fram í Barnasáttmálanum, samningi Sameinuðu þjóðanna um rétttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013 þar sem segir að börn eigi rétt á að láta í ljós skoðanir sínar og hafa áhrif á samfélagið. Niðurstöður kosninganna verða kynntar í upphafi kosningasjónvarps RÚV að kvöldi kosningadags.“