Fréttir

true

Enskumælandi ráð Mýrdalshrepps hlaut Landstólpann

Enskumælandi ráð í Mýrdalshreppi er handhafi Landstólpans, samfélagsviðurkenningar Byggðastofnunar, fyrir árið 2024. Alls bárust 26 tilnefningar víða af landinu. Viðurkenningin var afhent á ársfundi Byggðastofnunar sem fram fór í Bolungarvík í gær og er þetta í þrettánda sinn sem hún er veitt. Landstólpann hafa hlotið einstaklingar, fyrirtæki og hópar sem þykja hafa skarað fram úr…Lesa meira

true

Fjölmenning í Grundaskóla – Myndasyrpa

Í þessari viku hefur verið í gangi í Grundaskóla á Akranesi skemmtileg þemavinna um fjölmenningu í skólanum. Fjölbreytt vinna fór fram þessa daga þar sem nemendum var skipt upp í 24 hópa en alls koma nemendur frá 24 löndum sem stunda nám við Grundaskóla og telst Ísland þar ekki með. Í morgun lauk þemavinnunni með…Lesa meira

true

Knittable verður framlag Íslands í Creative Business Cup

Forkeppni Creative Business Cup 2024 var haldin í fyrsta skipti á Íslandi síðastliðinn föstudag og bar sprotafyrirtækið Knittable þar sigur úr býtum. Borgnesingurinn Nanna Einarsdóttir, stofnandi sprotans, mun keppa um titilinn fyrir bestu hugmyndina í lokakeppni Creative Business Cup 2024 í Kaupmannahöfn í júní næstkomandi. Að launum hlaut Knittable flug til Kaupmannahafnar og gistingu en…Lesa meira

true

Mótmæla harðlega öllum áformum um vindorkuver í nágrenni Norðurár

Aðalfundur veiðifélags Norðurár var haldinn fyrr í vikunni. Fundarmenn samþykktu áskorun til sveitarstjórnar Borgarbyggðar þess efnis að leggjast alfarið gegn öllum áformum um vindorkuver í Norðurárdal og Þverárhlíð og heimila ekki framkvæmdir við mælimastur á Grjóthálsi; „þar sem slíkt mastur yrði umfangsmikið mannvirki og náttúrulýti, auk þess sem framkvæmdin væri kostnaðarsöm og myndi kalla á…Lesa meira

true

Skallagrímur vann Þór og tryggði sér oddaleik

Fjórði leikur Skallagríms og Þórs Akureyrar í átta liða úrslitum fyrstu deildar karla í körfuknattleik fór fram í gærkvöldi í stútfullu Fjósinu í Borgarnesi. Skallarnir voru komnir upp við vegg því staðan fyrir leik í einvíginu var 1-2 fyrir Þór. Því var aldeilis ljóst að heimamenn þurftu sigur til að knýja fram oddaleik en með…Lesa meira

true

Fellsströndin og Gullni söguhringurinn

Verkefnið Fjársjóðir Fellsstrandar kynnt Staðarhaldarar á Staðarfelli á Fellsströnd í Dalasýslu fengu styrk frá Frumkvæðissjóði DalaAuðs nýverið. Þau hafa nú kynnt verkefni sitt á Facebook síðu Staðarfells og ber það heitið „Fjársjóðir Fellsstrandar.“ Markmið verkefnisins er að halda að minnsta kosti fjóra ólíka viðburði í sumar og beina sjónum að fjársjóðum Fellsstrandar í lofti, láði…Lesa meira

true

Héldu smiðjuhelgi í Borgarnesi

Elstu bekkir Grunnskóla Borgarness tóku þátt í smiðjuhelgi dagana 12. og 13. apríl sl. Tilgangur smiðjanna er að mæta vali nemenda með öðrum hætti en almennt tíðkast. Smiðjur voru meðal annars í skartgripagerð, austurlenskri matargerð, mósaík auk rafíþrótta og voru þær allar í grunnskólanum. Einnig var smiðja í hnefaleikum í íþróttahúsinu og klifursmiðja var haldin…Lesa meira

true

Ekki byrði heldur virði – virkara og hraustara eldra fólk

Sex heilbrigðisstofnanir og 22 sveitarfélög taka þátt í þróunarverkefnum sem ganga út á að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk. Þar á meðal eru Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV). Blaðamaður Skessuhorns hitti að máli þær Ingu Dóru Halldórsdóttur framkvæmdastjóra Brákarhlíðar í Borgarnesi, Höllu Magnúsdóttur forstöðumanns þjónustusviðs og Jóhönnu M. Björnsdóttur…Lesa meira

true

Leikskólabörn skoðuðu sjúkrabílinn

Nú í vor fer elsti árgangur á leikskólanum Sólvöllum í Grundarfirði í vinnustaðaheimsóknir til foreldra. Í gær skoðuðu börnin sjúkrabílinn í Grundarfirði. Sjúkraflutningamennirnir Júlíus Már Freysson og Tómas Freyr Kristjánsson tóku á móti krökkunum sem fengu að skoða bílinn og búnaðinn og forvitnast um starfsemina. Mest spennandi var þó þegar þau fengu að kveikja á…Lesa meira

true

Héldu forvarnadag í Fjölbrautaskóla Vesturlands

Þriðjudaginn 9. apríl sl. fór fram forvarnadagur í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, FVA. Fulltrúar frá Samgöngustofu, Neyðarlínunni 112 og Lögreglunni á Vesturlandi fluttu erindi fyrir nemendur um þá áhættuþætti sem snúa að ungum ökumönnum. Að þeim loknum fengu nemendur að heyra dæmi um 1-1-2 símtal tengt umferðarslysi og í kjölfarið var sviðsett umferðarslys á lóð…Lesa meira