
Héldu forvarnadag í Fjölbrautaskóla Vesturlands
Þriðjudaginn 9. apríl sl. fór fram forvarnadagur í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, FVA. Fulltrúar frá Samgöngustofu, Neyðarlínunni 112 og Lögreglunni á Vesturlandi fluttu erindi fyrir nemendur um þá áhættuþætti sem snúa að ungum ökumönnum. Að þeim loknum fengu nemendur að heyra dæmi um 1-1-2 símtal tengt umferðarslysi og í kjölfarið var sviðsett umferðarslys á lóð skólans þar sem nemendur fengu að fylgjast með starfi viðbragðsaðila á vettvangi viðkomandi slyss.