Frá afhendingu Landstólpans 2024. F.v. Hilary Jane Tricker og Lara Ólafsson frá enskumælandi ráði Mýrdalshrepps, Einar Freyr Elínarson sveitarstjóri Mýrdalshrepps og Andri Þór Árnason sérfræðingur hjá Byggðastofnun. Ljósm. Byggðastofnun.

Enskumælandi ráð Mýrdalshrepps hlaut Landstólpann

Enskumælandi ráð í Mýrdalshreppi er handhafi Landstólpans, samfélagsviðurkenningar Byggðastofnunar, fyrir árið 2024. Alls bárust 26 tilnefningar víða af landinu. Viðurkenningin var afhent á ársfundi Byggðastofnunar sem fram fór í Bolungarvík í gær og er þetta í þrettánda sinn sem hún er veitt. Landstólpann hafa hlotið einstaklingar, fyrirtæki og hópar sem þykja hafa skarað fram úr í verkefnum sínum og störfum. „Markmið með Landstólpanum er að efla skapandi hugsun og bjartsýni og er viðurkenningin því hugsuð sem nokkurs konar hvatningar- og bjartsýnisverðlaun,“ segir í tilkynningu frá Byggðastofnun. Viðurkenning þessi hefur á undanförnum þrettán árum runnið til allra landshluta, utan Vesturlands.

Enskumælandi ráð Mýrdalshrepps hlaut Landstólpann - Skessuhorn