
Nanna Einarsdóttir með verðlaunin. Ljósm: Klak.is
Knittable verður framlag Íslands í Creative Business Cup
Forkeppni Creative Business Cup 2024 var haldin í fyrsta skipti á Íslandi síðastliðinn föstudag og bar sprotafyrirtækið Knittable þar sigur úr býtum. Borgnesingurinn Nanna Einarsdóttir, stofnandi sprotans, mun keppa um titilinn fyrir bestu hugmyndina í lokakeppni Creative Business Cup 2024 í Kaupmannahöfn í júní næstkomandi. Að launum hlaut Knittable flug til Kaupmannahafnar og gistingu en forkeppnin var haldin á vegum KLAK – Icelandic Startups og Íslandsstofu.