Glanni í Norðurá. Ljósm. mm

Mótmæla harðlega öllum áformum um vindorkuver í nágrenni Norðurár

Aðalfundur veiðifélags Norðurár var haldinn fyrr í vikunni. Fundarmenn samþykktu áskorun til sveitarstjórnar Borgarbyggðar þess efnis að leggjast alfarið gegn öllum áformum um vindorkuver í Norðurárdal og Þverárhlíð og heimila ekki framkvæmdir við mælimastur á Grjóthálsi; „þar sem slíkt mastur yrði umfangsmikið mannvirki og náttúrulýti, auk þess sem framkvæmdin væri kostnaðarsöm og myndi kalla á áframhaldandi skuldbindingu og aukna kröfu um byggingu vindorkuvers,“ segir í bókun fundarins.

Mótmæla harðlega öllum áformum um vindorkuver í nágrenni Norðurár - Skessuhorn