Fréttir

true

Héraðsþing HSH var haldið á Lýsuhóli

Fimmtudaginn 11. apríl var héraðsþing Héraðssambands Snæfellsness og Hnappadalssýslu haldið á Lýsuhóli. Töluvert margar tillögur voru lagðar fyrir þingið og ný lög HSH voru samþykkt samhljóða með breytingartillögu, en fyrst og fremst var verið að uppfæra lögin miðað við tíð og tíma en fyrri lög voru síðan 2008. Þá voru tillögur um arðgreiðslu og lottóuppgjör…Lesa meira

true

Snæfell tapaði eftir framlengingu og féll í fyrstu deild

Fjórði leikur Tindastóls og Snæfells í undanúrslitum fyrstu deildar kvenna í körfuknattleik fór fram í gærkvöldi og var leikurinn á Sauðárkróki. Með sigri í leiknum gátu Tindastólskonur tryggt sér sæti í úrslitum á móti Aþenu eða KR en Snæfell fengið oddaleik á heimavelli færu þær með sigur af hólmi. Það var því ansi mikið undir…Lesa meira

true

Stórsýningin Verk og vit fer nú fram í Laugardalnum – myndasyrpa

Stórsýningin Verk og vit hófst síðdegis í gær í Laugardalshöllinni í Reykjavík og verður opin til sunnudags. Þar kynna fyrirtæki og stofnanir í byggingariðnaði, mannvirkjagerð og skipulagsmálum vörur sínar og þjónustu. Sýningin er einungis opin fagaðilum fyrstu tvo dagana en almenningi gefst kostur á að heimsækja hana um helgina. Verk og vit hefur fest sig…Lesa meira

true

Ný stjórn Byggðastofnunar

Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra hefur skipað nýja stjórn Byggðastofnunar til eins árs en skipan hennar var kynnt á ársfundi Byggðastofnunar sem haldinn var í Bolungarvík síðasta miðvikudag. Óli Halldórsson frá Húsavík verður nýr formaður stjórnar en Guðný Hildur Magnúsdóttir frá Bolungarvík nýr varaformaður. Samkvæmt lögum um Byggðastofnun skipar ráðherra sjö einstaklinga í stjórn stofnunarinnar til eins…Lesa meira

true

Uppbygging á aðstöðu til jarðræktarrannsókna að hefjast á Hvanneyri

Fyrir nokkru sendi Bjarni Jónsson þingmaður Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi inn fyrirspurn til háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um uppbyggingu aðstöðu til jarðræktarrannsókna á Hvanneyri. Málið hefur legið í dvala þrátt fyrir fyrirliggjandi fjármögnunarkosti en Bjarni hefur lagt sig eftir því að fylgja málinu eftir. Með svari ráðherra hafa nú öll tvímæli verið tekin af um…Lesa meira

true

Kári úr leik í Lengjubikarnum eftir tap gegn Þrótti Vogum

Kári og Þróttur Vogum mættust í undanúrslitaleik í B deild Lengjubikars karla í knattspyrnu í gærkvöldi og var viðureignin í Akraneshöllinni. Kári hafði unnið alla leiki sína í riðlinum og var þetta í fyrsta skiptið sem Kári kemst í undanúrslit í B deild. Fyrri hálfleikur var frekar tíðindalítill, liðin voru að þreifa fyrir sér og…Lesa meira

true

Kæra til lögreglu alvarlega vanrækslu á nautgripum

Matvælastofnun hefur kært til Lögreglunnar á Norðurlandi vestra alvarlega vanrækslu á nautgripum á lögbýli á svæðinu. „Við eftirlit sem framkvæmt var með aðstoð lögreglu fundust 29 dauðir nautgripir í gripahúsi. Í kjölfarið aflífuðu starfsmenn stofnunarinnar 21 grip til viðbótar á staðnum sökum slæms ástands, allt gripir sem voru hýstir í húsinu. Aðrir nautgripir, sem hafði…Lesa meira

true

Hvítnar í fjöll í kvöld og færð gæti þar spillst

Veðurstofan bendir á að í dag verður vaxandi suðaustanátt, 8-15 m/s síðdegis með rigningu eða slyddu sunnan- og vestanlands, en hægari og þurrt norðaustantil. Hlýnandi veður. Vegagerðin bendir jafnframt á að á Hellisheiði og í Þrengslum er spáð snjókomu og 10-13 m/s frá því um kl. 15 í dag og fram á kvöld, þegar hlánar.…Lesa meira

true

Var með kannabis í fórum sínum

Bifreið var ekið út af Akrafjallsvegi nærri Kjalardal í liðinni viku og hafnaði bifreiðin á hvolfi út í skurði. Samkvæmt dagbók Lögreglunnar á Vesturlandi var ökumaður bifreiðarinnar fluttur með sjúkrabifreið á HVE á Akranesi til aðhlynningar en meiðsli hans voru ekki talin alvarleg. Ökumaður bifreiðarinnar er grunaður um ölvun við akstur. Eitt fíkniefnamál kom upp…Lesa meira

true

Tónlistarfólk í Stykkishólmi fagnar í vor

Lúðrasveit Stykkishólms er jafngömul lýðveldinu og fagnar 80 ára afmæli í ár. Hún var stofnuð á sumardaginn fyrsta árið 1944. Haldið verður upp á afmælið með glæsilegri afmælisdagskrá í Stykkishólmskirkju fimmtudaginn 25. apríl, á sumardaginn fyrsta. Það var einmitt á sumardaginn fyrsta árið 1944 sem Víkingur Jóhannsson fyrsti stjórnandi sveitarinnar stofnaði Lúðrasveitina ásamt fleira góðu…Lesa meira