Fær í flestan sjó. Ljósmyndir: mm

Stórsýningin Verk og vit fer nú fram í Laugardalnum – myndasyrpa

Stórsýningin Verk og vit hófst síðdegis í gær í Laugardalshöllinni í Reykjavík og verður opin til sunnudags. Þar kynna fyrirtæki og stofnanir í byggingariðnaði, mannvirkjagerð og skipulagsmálum vörur sínar og þjónustu. Sýningin er einungis opin fagaðilum fyrstu tvo dagana en almenningi gefst kostur á að heimsækja hana um helgina. Verk og vit hefur fest sig í sessi sem lykilviðburður og einskonar uppskeruhátíð í byggingariðnaði, skipulagsmálum og mannvirkjagerð hér á landi. Rúmlega hundrað sýnendur taka þátt í ár, sem er svipaður fjöldi og á síðustu sýningum.

Stórsýningin Verk og vit fer nú fram í Laugardalnum - myndasyrpa - Skessuhorn