
Kæra til lögreglu alvarlega vanrækslu á nautgripum
Matvælastofnun hefur kært til Lögreglunnar á Norðurlandi vestra alvarlega vanrækslu á nautgripum á lögbýli á svæðinu. „Við eftirlit sem framkvæmt var með aðstoð lögreglu fundust 29 dauðir nautgripir í gripahúsi. Í kjölfarið aflífuðu starfsmenn stofnunarinnar 21 grip til viðbótar á staðnum sökum slæms ástands, allt gripir sem voru hýstir í húsinu. Aðrir nautgripir, sem hafði verið haldið úti við, voru hýstir yfir nóttina, en síðan voru þeir færðir til slátrunar daginn eftir. Hræjum og skrokkum hefur þegar verið fargað á viðurkenndum urðunarstað,“ segir í tilkynningu frá MAST.