
Lúðrasveit Stykkishólms á tónleikum í Stykkishólmskirkju fyrir stuttu. Með nemendunum eru kennarar þeirra, þau Anastasia Kiakhidi og Martin Markvoll. László Petö píanókennari við skólann tók myndina.
Tónlistarfólk í Stykkishólmi fagnar í vor
Lúðrasveit Stykkishólms er jafngömul lýðveldinu og fagnar 80 ára afmæli í ár. Hún var stofnuð á sumardaginn fyrsta árið 1944. Haldið verður upp á afmælið með glæsilegri afmælisdagskrá í Stykkishólmskirkju fimmtudaginn 25. apríl, á sumardaginn fyrsta.