Frá Hvanneyri. Ljósm. mm. Texti: Guðrún Jónsdóttir

Uppbygging á aðstöðu til jarðræktarrannsókna að hefjast á Hvanneyri

Fyrir nokkru sendi Bjarni Jónsson þingmaður Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi inn fyrirspurn til háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um uppbyggingu aðstöðu til jarðræktarrannsókna á Hvanneyri. Málið hefur legið í dvala þrátt fyrir fyrirliggjandi fjármögnunarkosti en Bjarni hefur lagt sig eftir því að fylgja málinu eftir. Með svari ráðherra hafa nú öll tvímæli verið tekin af um framkvæmdina og er stefnt að því að aðstaðan verði tilbúin árið 2027. 

Uppbygging á aðstöðu til jarðræktarrannsókna að hefjast á Hvanneyri - Skessuhorn