
Næstkomandi sunnudag klukkan 15 munu þau Diddú og Óskar Pétursson koma fram á tónleikum í Borgarneskirkju ásamt Jónínu Ernu Arnardóttur. Tónleikarnir eru á vegum Minningarsjóðs Heimis Klemenzsonar sem var stofnaður árið 2018 til að styðja við ungt tónlistarfólk úr Borgarfirði sem stundar tónlistarnám á efri stigum. Reglulega hefur stjórn sjóðsins ásamt velunnurum staðið fyrir styrktartónleikum.…Lesa meira








