
Við Saxhól á Snæfellsnesi. Ljósm. hig
Ferðamannasumar fram undan
Skessuhorn ákvað að taka saman heildarfjölda ferðamanna á helstu ferðamannaseglum Vesturlands fyrir árið 2023, en einnig var haft samband við þjónustuaðila flestra staðanna. Púlsinn var tekinn á hvort framkvæmdir væru fyrirhugaðar á þessum helstu seglum Vesturlands. Á mörgum þekktum ferðamannastöðum eru teljarar við bílastæði og eru flestar tölur frá þeim í birtingu á vef Ferðamálastofu Íslands.