Fréttir

true

Hvalfjörður – efnaverksmiðja í bígerð

Fyrirtækið Qair á Íslandi boðaði til opins fundar á Hótel Laxárbakka í Leirársveit þriðjudaginn 9. apríl sl. Tilgangur fundarins var að kynna fyrirhuguð áform um svokallað Katanesverkefni; uppsetningu verksmiðju á Grundartanga sem framleiða á rafeldsneyti og umhverfismat henni tengt. Þetta er efnaverksmiðja sem framleiða á ammoníak, en mikil eftirspurn er í heiminum eftir vistvænu ammoníaki…Lesa meira

true

Úrslit í stærðfræðikeppni grunnskólanna á Vesturlandi

Föstudaginn 15. mars var stærðfræðikeppni grunnskólanna á Vesturlandi haldin í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Metfjöldi þátttakenda var að þessu sinni eða 180 nemendur frá sjö grunnskólum á Vesturlandi. Veittar voru viðurkenningar fyrir tíu efstu sætin og verðlaun fyrir þrjú efstu á sal skólans. Mikil eftirvænting var meðal nemenda og gesta þegar úrslit voru kynnt í…Lesa meira

true

Hljóðhönnuðurinn Gulli Gunnarsson vinnur til BAFTA verðlauna

Í liðinni viku voru BAFTA verðlaun afhent, en það eru verðlaun í heimi tölvuleikja. Hólmarinn Gulli Gunnarsson starfar fyrir eitt af leiðandi fyrirtækjum í tölvuleikja heiminum, Remedy Entertainment. Fyrirtækið hefur getið sér gott orð vegna tölvuleikja á borð við Max Payne, Control og tölvuleikinn Alan Wake sem kom út árið 2013. Gulli er í teymi…Lesa meira

true

Hafnarstjórinn sem hefði getað orðið prestur

Viðtal úr Sjómannadagsblaði Skessuhorns frá árinu 2020 „Ég var alltaf ákveðinn í því að fara í Stýrimannaskólann, allt frá bernsku, og fermingarárið byrjaði ég á sjónum. Ég var reyndar mun yngri þegar ég fór fyrst á sjó með afa mínum þar sem hann var á rauðmaganetum, bara átta, níu ára og bundinn við mastrið. En…Lesa meira

true

„Að vera á sjó var eins og hver önnur vinna“

Beggi Egils rifjar upp farsælan feril á flutningaskipum Viðtal úr Sjómannadagsblaði Skessuhorns frá árinu 2020 Borgnesingurinn Þorbergur Lind Egilsson, eða Beggi eins og hann er oftast kallaður, varði stærsta hluta af sinni starfsævi á ferðinni, bæði á þjóðvegum landsins og á miðunum. Hann hóf ungur störf á Akraborginni sem sigldi milli Borgarness og Reykjavíkur og…Lesa meira

true

Mikilvæg lífæð fyrir fólkið hér á svæðinu

Blaðamaður Skessuhorns gerði sér ferð í Heilsu Hof á Kleppjárnsreykjum en þar er að finna fyrsta flokks líkamsræktarstöð sem íbúar Kleppjárnsreykja og nærsveita nota. Sigrún Hjartardóttir byrjaði starfsemi í febrúar 2012 og hefur verið öflug að sníða fjölbreytta dagskrá fyrir fjölbreyttan hóp íbúa uppsveita Borgarfjarðar. Mikil aukning  „Ég var með íþróttaskóla hér inni til að…Lesa meira

true

Íbúafundur Miðbæjarsamtakanna í Tónbergi á mánudaginn

RÁÐHÚS Á AKRATORG – MEIRA STUÐ FYRIR MINNI PENING – EKKI VERA ALVEG SAMA! Miðbæjarsamtökin þakka fyrir góðar viðtökur vegna átaksins „Fyrsta hjálp fyrir miðbæinn” og bjóða bæjarbúum til íbúafundar í Tónbergi mánudaginn 15. apríl klukkan 20. Húsið opnar kl. 19 og við bjóðum upp á kaffi og kleinur. Bæjarstjóri og bæjarstjórn hafa sagt: Gamla…Lesa meira

true

Viðunandi útkoma Dalabyggðar á síðasta ári

Ársreikningur Dalabyggðar 2023 var samþykktur á fundi sveitarstjórnar 11. apríl. Að sögn Björns Bjarka Þorsteinssonar sveitarstjóra er niðurstaðan viðunandi miðað við aðstæður. Fram kemur á heimasíðu Dalabyggðar að rekstrarniðurstaða A hluta er jákvæð um sem nemur 48,1 millj. kr. á móti áætluðum afgangi upp á 1,0 millj.kr. og rekstrarniðurstaða A og B hluta er jákvæð…Lesa meira

true

Óbyggðanefnd framlengir frest vegna eyja og skerja

Óbyggðanefnd hefur framlengt kröfulýsingarfrest landeigenda á svæði 12 (eyjar og sker) til 2. september 2024. Framlengingunni er ætlað að gefa fjármála- og efnahagsráðherra færi á að ljúka endurskoðun sem ráðherra hefur boðað á kröfugerð ríkisins, sem og kortagerð vegna hennar, og tryggja að landeigendur hafi síðan nægan tíma að því loknu til að bregðast við…Lesa meira

true

Fjölbrautaskóli Snæfellinga 20 ára

Fjölbrautaskóli Snæfellinga (FSN) hefur starfað frá árinu 2004 og yfirstandandi skólaár er því tuttugasta starfsárið. Blaðamaður Skessuhorns sló á þráðinn til Hrafnhildar Hallvarðsdóttur skólameistara til að forvitnast um skólastarfið. Skóli í sífelldri þróun „Skólastofnun eins og FSN er í sífelldri þróun, hér er starfsfólk sem alltaf finnur upp á nýjungum í kennslu og þróast í…Lesa meira