
Fjölbrautaskóli Snæfellinga í Grundarfirði. Ljósm. gj
Fjölbrautaskóli Snæfellinga 20 ára
Fjölbrautaskóli Snæfellinga (FSN) hefur starfað frá árinu 2004 og yfirstandandi skólaár er því tuttugasta starfsárið. Blaðamaður Skessuhorns sló á þráðinn til Hrafnhildar Hallvarðsdóttur skólameistara til að forvitnast um skólastarfið.