
Frá Búðardal. Ljósm. úr safni
Viðunandi útkoma Dalabyggðar á síðasta ári
Ársreikningur Dalabyggðar 2023 var samþykktur á fundi sveitarstjórnar 11. apríl. Að sögn Björns Bjarka Þorsteinssonar sveitarstjóra er niðurstaðan viðunandi miðað við aðstæður. Fram kemur á heimasíðu Dalabyggðar að rekstrarniðurstaða A hluta er jákvæð um sem nemur 48,1 millj. kr. á móti áætluðum afgangi upp á 1,0 millj.kr. og rekstrarniðurstaða A og B hluta er jákvæð um sem nemur 106,7 millj.kr. Áætlun með viðaukum gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu upp á 63,1 millj.kr. og er því niðurstaðan 69,4% yfir áætlun. Breyting rauntalna í rekstrarniðurstöðu A og B hluta er jákvæð um 120 millj.kr.