Fréttir

true

Styrktartónleikar í Borgarneskirkju

Næstkomandi sunnudag klukkan 15 munu þau Diddú og Óskar Pétursson koma fram á tónleikum í Borgarneskirkju ásamt Jónínu Ernu Arnardóttur. Tónleikarnir eru á vegum Minningarsjóðs Heimis Klemenzsonar sem var stofnaður árið 2018 til að styðja við ungt tónlistarfólk úr Borgarfirði sem stundar tónlistarnám á efri stigum. Reglulega hefur stjórn sjóðsins ásamt velunnurum staðið fyrir styrktartónleikum.…Lesa meira

true

Hoppað á og hoppað út á Snæfellsnesi

Átta nýsköpunarteymi kláruðu nýverið viðskiptahraðalinn Vesturbrú sem Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, NýVest og Gleipnir stóðu fyrir. Snæfellsnes Adventure var eitt af þeim átta teymum en fyrirtækið stefnir á sérhæfingu í móttöku farþega skemmtiferðaskipa með sjálfbærni, fjölgun atvinnutækifæra og hag samfélagsins að leiðarljósi. Hið nýlega stofnaða ferðaþjónustufyrirtæki undirbýr nú, í samstarfi við Hópferðabíla Svans Kristófers og…Lesa meira

true

Byggðasafnið í Görðum lokað næstu tvær helgar

Á fundi menningar- og safnanefndar Akraneskaupstaðar á miðvikudaginn óskaði Jón Allansson deildarstjóri minjavörslu í Byggðasafninu í Görðum eftir að það yrði lokað næstu tvær helgar, 13. og 20. apríl. Ástæða lokunar eru nauðsynlegar framkvæmdir við rakaskemmdir á ákveðnum hluta safnsins. Saga þarf í veggi á þremur stöðum og skipta út gömlum rörum. Fram kemur í…Lesa meira

true

Uppskeruhátíð tónlistarskóla í Tónbergi

NÓTAN – Uppskeruhátíð tónlistarskólanna er árlegur viðburður hjá tónlistarskólum á Íslandi. Hátíðin var fyrst haldin skólaárið 2009-2010 og er árlegur viðburður í kerfi tónlistarskóla á Íslandi. Hátíðin er í senn faglega hvetjandi og skemmtilegt innlegg í skólastarfið fyrir alla aðstandendur skólanna, jafnt innan veggja þeirra sem utan. Tónlistarskólar landsins eru um 90 talsins og um…Lesa meira

true

Dulúðin dró Eyþór að gömlum bókum

Rætt við Eyþór Guðmundsson fornbókasafnara frá Beitistöðum „Það merkilegasta sem til er í mínu safni er frá Leirarárgörðum og ekki nema 16 síður þó. Það er tilskipun Danakonungs frá árinu 1800, um að leggja niður Alþingi Íslendinga. Sú tilskipun er bara til í tveimur öðrum eintökum, sem eru bæði á Landsbókasafni. Íslendingar monta sig af…Lesa meira

true

Jafntefli hjá HK og ÍA í Lengjubikarnum

HK og ÍA mættust í B deild Lengjubikars kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi og var leikurinn inni í hlýjunni í Kórnum í Kópavogi. Leikmenn HK byrjuðu betur í leiknum og þær komust yfir á 12. mínútu þegar Asha Nikole Zuniga skoraði úr aukaspyrnu. Skagakonur unnu sig svo hægt og rólega inn í leikinn og stjórnuðu…Lesa meira

true

Ferðamannasumar fram undan

Skessuhorn ákvað að taka saman heildarfjölda ferðamanna á helstu ferðamannaseglum Vesturlands fyrir árið 2023, en einnig var haft samband við þjónustuaðila flestra staðanna. Púlsinn var tekinn á hvort framkvæmdir væru fyrirhugaðar á þessum helstu seglum Vesturlands. Á mörgum þekktum ferðamannastöðum eru teljarar við bílastæði og eru flestar tölur frá þeim í birtingu á vef Ferðamálastofu…Lesa meira

true

Snæfell tapaði í Síkinu

Annar leikur undanúrslitaviðureignar Snæfells og Tindastóls í körfuknattleik kvenna fór fram í gærkvöldi á Sauðárkróki. Um er að ræða umspilsleiki um sæti í Subwaydeild kvenna á næsta tímabili. Fyrsti leikur liðanna var á mánudaginn síðastliðinn og fór Tindastóll þá með sigur af hólmi en leikið var í Stykkishólmi. Leikurinn í Síkinu hófst með mikilli baráttu…Lesa meira

true

Viðbragðsaðilar úr Borgarbyggð stilltu saman strengi

Síðastliðinn þriðjudag var haldinn kynningarfundur í húsnæði Björgunarsveitarinnar Brákar við Fitjar í Borgarnesi. Til fundar mætti slökkvilið Borgarbyggðar, björgunarsveitirnar Brák, Ok og Heiðar, Sjúkraflutningafólk frá HVE ásamt vaktlæknum, Lögreglan á Vesturlandi og sérfræðingur frá Umhverfisstofnun Íslands. Hver og einn aðili hélt kynningu á sínu starfi, sínum búnaði og verklagi og í framhaldi var tekin kynning…Lesa meira

true

Ný flokkunareining við Miðgarð

Fram kemur á vef Hvalfjarðarsveitar að unnið er að breyttu fyrirkomulagi á flokkun úrgangs í Hvalfjarðarsveit og raunar landinu öllu, með það að markmiði að samræma aðgerðir á landsvísu, auka flokkun og minnka urðun. Því betur sem úrgangurinn er flokkaður sem frá íbúum kemur, því meiri líkur eru á að hægt sé að endurvinna hann.…Lesa meira