Skagakonur í lok síðasta tímabils. Ljósm. vaks

Jafntefli hjá HK og ÍA í Lengjubikarnum

HK og ÍA mættust í B deild Lengjubikars kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi og var leikurinn inni í hlýjunni í Kórnum í Kópavogi. Leikmenn HK byrjuðu betur í leiknum og þær komust yfir á 12. mínútu þegar Asha Nikole Zuniga skoraði úr aukaspyrnu. Skagakonur unnu sig svo hægt og rólega inn í leikinn og stjórnuðu honum á köflum. Þær náðu þó ekki að koma tuðrunni inn og staðan 1-0 fyrir HK í hálfleik.

Jafntefli hjá HK og ÍA í Lengjubikarnum - Skessuhorn