
Um 70 manns mættu á fundinn. Ljósm: Rolando Diaz
Viðbragðsaðilar úr Borgarbyggð stilltu saman strengi
Síðastliðinn þriðjudag var haldinn kynningarfundur í húsnæði Björgunarsveitarinnar Brákar við Fitjar í Borgarnesi. Til fundar mætti slökkvilið Borgarbyggðar, björgunarsveitirnar Brák, Ok og Heiðar, Sjúkraflutningafólk frá HVE ásamt vaktlæknum, Lögreglan á Vesturlandi og sérfræðingur frá Umhverfisstofnun Íslands. Hver og einn aðili hélt kynningu á sínu starfi, sínum búnaði og verklagi og í framhaldi var tekin kynning á tækja- og bílaflota hverrar einingar.