Fréttir

true

„Við höfum svo fína aðstöðu til að gera svo margt og þjóna samfélaginu betur“

segir Ingibjörg Ösp Júlíusdóttir forstöðumaður Bókasafns Akraness Margt hefur breyst í starfsemi almenningsbókasafna á liðnum árum. Frá því eins og var á fyrri tímum að vera eingöngu með útlán á bókum yfir í það að verða fjölbreyttar samfélags- og menningarmiðstöðvar. Þessi þróun á sér stað út um allan heim. Fram kom í nýlegri skýrslu Norrænu…Lesa meira

true

Bæjarstjórn Akraness samþykkti stefnu í öldrunarþjónustu

Á fundi bæjarstjórnar Akraness 12. mars sl. var samþykkt stefna bæjarins í öldrunarmálum. Velferðar- og mannréttindaráði var falið að formgera tillögur um forgangsröðun verkefna sem fari svo til efnislegrar meðferðar í stjórnsýslu Akraneskaupstaðar. Stefnan er svohljóðandi en hana má finna á akranes.is. Inngangur Aldurssamsetning þjóðarinnar breytist nú hratt. Eldra fólk lifir lengur en áður, og…Lesa meira

true

Vestlenskur matur á markaði á Akranesi næsta sunnudag

Sunnudaginn 24. mars milli kl. 11:00 og17:00 verður Matarauður Vesturlands á 2. hæð í Þróunarfélaginu Breið við Bárugötu 8-10 á Akranesi. Þar koma saman framleiðendur af öllu Vesturlandi með fjölbreyttar vörur. Má þar nefna þurrkað hrossa- og ærkjöt, íslenskt hvítlaukssalt, osta, nautasteikur, pylsur, folaldakjöt, rekjanlega ull, andaregg, túlípanar, olíur, súkkulaði og fleira. Markaðurinn er haldinn…Lesa meira

true

Ingimundur gerður að heiðursfélaga FRÍ

Frjálsíþróttafólk hélt sitt 64. þing í Skagafirði um helgina. Þingið var sérlega starfssamt en fyrir því lágu 29 tillögur um hin ýmsu málefni frjálsíþrótta. Þar á meðal voru margar tengdar hlaupum og eflingu hlaupa, þar sem FRÍ fer með æðsta vald og ábyrgð. Ingimundur Ingimundarson var gerður að heiðursfélaga Frjálsíþróttasambands Íslands á þinginu, en hann…Lesa meira

true

Skýrslan Leiðir að byggðafestu er komin út

Út er komin skýrslan Leiðir að byggðafestu eftir Hlédísi Sveinsdóttur og Björn Bjarnason. Hún er unnin á vegum Fjórðungssambands Vestfirðinga (FV), Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV). Á vef SSV er greint frá því að aðdraganda skýrslunnar megi rekja til fundar landshlutasamtakanna þriggja og þingmanna kjördæmisins um stöðu sauðfjárræktar…Lesa meira

true

Stelpurnar í 5. flokki ÍA stóðu sig vel í maraþoni

Síðasta laugardag voru stelpurnar úr 5. flokki ÍA með fótboltamaraþon í Akraneshöllinni. Þær spiluðu stanslaust í sex klukkustundir en hófu leik klukkan 18 og voru að til miðnættis. Stelpurnar höfðu verið að ganga í hús á Akranesi undanfarið til að safna áheitum fyrir viðburðinn en þær eru að safna fyrir keppnisferð á Pæjumótið í Vestmannaeyjum…Lesa meira

true

Fólk láti strax vita um grunsamlegar mannaferðir

Lögreglan á Vesturlandi hefur sent tilkynningu þess efnis að síðustu daga hefur orðið vart við grunsamlegar mannaferðir á Akranesi. „Vill lögregla benda íbúum Akraness á að hafa samband strax við lögreglu ef það verður vart við grunsamlegar mannaferðir sama á hvaða tíma sólarhringsins það er. Hringja á í síma 112 og óska eftir aðkomu lögreglu…Lesa meira

true

Margir utan vegar eftir hvassviðri síðasta sólarhring

Þó nokkuð er um mannlausa bíla við vegarkant þjóðvegar eitt í Melasveit, einkum eru bílar á leiðinni frá Fiskilæk að Höfn. Veðurstofan hafði spáð stórhríð á vestan- og norðvestanverðu landinu í gær. Samkvæmt Veðurstofunni verður vetrarlegt veður á landinu næstu daga en vesturhluti landsins fær einnig sinn skerf af úrkomu því á sunnudag næstkomandi er…Lesa meira

true

Byssusýning framundan á Stokkseyri

Árleg byssusýning Veiðisafnsins á Stokkseyri verður laugardaginn 23. og sunnudaginn 24. mars frá kl. 11–18 í húsakynnum Veiðisafnsins við Eyrarbraut 49. „Hjálmar í Hlað og félagar sýna úrval skotvopna sem og búnað til skotveiða ásamt sjónaukum og aukabúnaði til sýnis og sölu. Kynntir verða rifflar frá Blaser, Sauer, haglabyssur frá Sauer og Blaser, einnig sjónaukar…Lesa meira

true

Brynhildur Traustadóttir er afar öflug í sundinu vestanhafs

Brynhildur Traustadóttir tók um helgina þátt í einu af stærsta sundmóti í Bandaríkjunum; NCAA Championship Division 2. Þar setti hún tvö skólamet en annað metið hafði ekki verið slegið síðan árið 1996. Í skriðsundi, 1650 yarda, bætti hún 28 ára gamalt skólamet um heilar sjö sekúndur og hafnaði í 6. sæti. Þá synti hún lokasprettinn…Lesa meira