
Ljósmynd úr skýrslunni
Skýrslan Leiðir að byggðafestu er komin út
Út er komin skýrslan Leiðir að byggðafestu eftir Hlédísi Sveinsdóttur og Björn Bjarnason. Hún er unnin á vegum Fjórðungssambands Vestfirðinga (FV), Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV). Á vef SSV er greint frá því að aðdraganda skýrslunnar megi rekja til fundar landshlutasamtakanna þriggja og þingmanna kjördæmisins um stöðu sauðfjárræktar í landinu. Byggðastofnun hafði þá í skýrslu um málefnið dregið upp afar dökka mynd af stöðu og framtíðarhorfum sauðfjárræktar á Íslandi. Þar var það jafnframt metið svo að verst kæmi þetta niður á Dalabyggð, Reykhólahreppi, Húnaþingi vestra og Ströndum.