
Síðdegis í dag rákust saman flutningabíll og rúta norðan megin á Vatnaleið á Snæfellsnesi. Bílarnir lentu ekki framan á hvorum öðrum, en við áreksturinn fór vinstri hlið rútunnar illa og brotnuðu þar allar rúður. Færð var erfið á heiðinni; hálka og talsverður skafrenningur þegar slysið varð. Fjölmennt lið viðbragðsaðila var kallað á vettvang, meðal annars…Lesa meira







