
Lögregla varar við grunsamlegum mannaferðum
Lögreglan á Vesturlandi sendi í gær frá sér tilkynningu þess efnis að síðustu daga hafi orðið vart við grunsamlegar mannaferðir á Akranesi. Lögregla óskaði eftir því að fólk hefði samband strax við lögreglu í gegnum 112, ef það yrði vart við grunsamlegar mannaferðir og bætti við sama á hvaða tíma sólarhringsins það væri. Samkvæmt heimildum Skessuhorns hefur á síðustu dögum sést til manna vera að sniglast í kringum hús og bíla og þá er a.m.k. eitt innbrot í hús við Vesturgötu tengt við viðkomandi. Þar voru húsráðendur staddir erlendis þegar innbrotið var framið.