
Fermingarfræðslunni að ljúka og styttist í fermingar í Borgarnesi
Nú er undirbúningur í fullum gangi hjá fermingarbörnum í Borgarnesi og styttist í stóra daginn - sjálfan fermingardaginn. Blaðamaður leit við í fermingarfræðslu í Borgarneskirkju, þar sem séra Heiðrún Helga Bjarnadóttir var með fermingarbörnin í fræðslu- og spjallstund. „Ég hitti krakkana einu sinni í viku frá hausti og fram á vor. Mér finnst mikilvægt að hitta þau reglulega og koma á þessari tengingu við þau, fá innsýn í þeirra daglega líf sem stundum getur verið svolítill rússíbani þegar við erum í 8. bekk. Fræðslan einkennist að miklu leyti af lífsleikni, krakkarnir læra einnig um önnur trúarbrögð, þau fá sorgarfræðslu auk þess sem þau læra bænir og Biblíusögur. Rauði þráðurinn í fræðslunni er að þau finni þessa innri ró, sína innri rödd - í bæninni,“ segir Heiðrún Helga.