
Rúta og flutningabíll lentu saman á Vatnaleið
Síðdegis í dag rákust saman flutningabíll og rúta norðan megin á Vatnaleið á Snæfellsnesi. Bílarnir lentu ekki framan á hvorum öðrum, en við áreksturinn fór vinstri hlið rútunnar illa og brotnuðu þar allar rúður. Færð var erfið á heiðinni; hálka og talsverður skafrenningur þegar slysið varð. Fjölmennt lið viðbragðsaðila var kallað á vettvang, meðal annars sjúkrabílar og björgunarsveitir frá Stykkishólmi og Grundarfirði sem og lögregla. Ökumenn sem komu að vettvangi lögðu bílum sínum vindmegin við rútuna til að skýla fólkinu þar til viðbragðsaðilar mættu. Samkvæmt heimildum Skessuhorns voru allir úr rútunni, 16 manns, erlendir ferðamenn. Þeir voru fluttir undir læknishendur í Stykkishólmi, en fólkið er ekki talið alvarlega slasað. Þó skárust þeir sem voru í gluggaröð rútunnar vinstra megin þar sem allar rúður brotnuðu eins og fyrr segir.