
Nokkur umferðaróhöpp vegna hálku
Í liðinni viku voru höfð afskipti af allnokkrum ökumönnum vegna notkunar farsíma við aksturinn eða vegna skorts á notkun bílbelta. Einnig kemur fram í dagbók Lögreglunnar á Vesturlandi að nokkuð var um afskipti af ökumönnum stærri bifreiða, ýmist vegna rangrar notkunar á ökurita eða farmur reyndist of þungur eða illa frágenginn. Tvö umferðaróhöpp urðu á Vesturlandsvegi nærri Hafnarfjalli þar sem bifreiðar höfnuðu utan vegar eftir að ökumenn misstu stjórn á þeim í hálku. Engin slys urðu á fólki í þessum óhöppum en eitthvað tjón á ökutækjum. Eitt umferðaróhapp varð á Snæfellsnesvegi nærri Hítardal þar sem bifreið hafnaði utan vegar með þeim afleiðingum að ökumaður bifreiðarinnar meiddist eitthvað og var fluttur á sjúkrahús með sjúkrabifreið. Tvö minni háttar umferðaróhöpp komu einnig inn á borð lögreglu án slysa á fólki.