Fréttir

true

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi þátttakendur á fjárfestingahátíð

Dagana 12.-14. mars sl. fór fram fjárfestingahátíðin MIPIM í Cannes í Frakklandi. Hátíðin er með þeim stærstu sem haldin er í heiminum og eru rúmlega 20.000 þátttakendur sem koma víðs vegar að til að kynna og leita að fjárfestingarverkefnum. Í ár tóku landshlutasamtökin þátt í MIPIM og sendu SSV tvo fulltrúa, auk þess sem Þróunarfélagið…Lesa meira

true

Fjölbreytt tónlistarveisla Ruby Francis í Frystiklefanum

Laugardaginn 23. mars næstkomandi kemur breska r&b söngkonan Ruby Francis fram í Frystiklefanum í Rifi, ásamt íslensku hljómsveitunum Flesh Machine og Sick Knee’s. Áhrifavaldar Ruby Francis í tónlist eru Chaka Khan, Stevie Wonder, Level 42 og Erykah Badu. Árið 2021 kom út hennar fyrsta plata af fullri lengd „Archives“ sem hún bjó til sjálf í…Lesa meira

true

Veðrinu tekur að slota eftir miðnætti við Breiðafjörð og á Vestfjörðum

Appelsínugul viðvörun er í gildi á norðanverðum Vestfjörðum vegna snjókomu, hvassviðris og hættu á snjóflóðum. Gildir hún í allan dag og til klukkan 6 í fyrramálið. Til miðnættis í kvöld gildir gul viðvörun fyrir Breiðafjörð vegna norðaustan 15-23 m/s og snjókomu. „Búast má við skafrenningi með takmörkuðu eða lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Afmarkaðar samgöngutruflanir…Lesa meira

true

Hanna Ágústa Olgeirsdóttir valin Rödd ársins

Úrslitakeppni söngkeppninnar Vox Domini 2024 var haldin í Salnum í Kópavogi í gærkvöldi. Þar var Hanna Ágústa Olgeirsdóttir sópransöngkona úr Borgarnesi valin Rödd ársins, en hún lenti einnig í fyrsta sæti í Opnum flokki keppninnar. Ellert Blær Guðjónsson barítón hlaut áheyrendaverðlaun og Vera Hjördís Matsdóttir sópran hlaut svo sérstök verðlaun fyrir besta flutning á lagi…Lesa meira

true

Ekki gott kvöld í körfunni hjá liðunum af Vesturlandi

Næstsíðasta umferðin í 1. deild karla í körfuknattleik fór fram á föstudagskvöldið og eru línur að skýrast fyrir úrslitakeppnina. Eins og staðan er núna eru lið ÍA og Skallagríms örugg í úrslitakeppnina og Snæfell heldur sæti sínu í deildinni nema Hrunamenn vinni sigur á ÍR í síðustu umferðinni sem er ansi ólíklegt. Föstudagskvöldið fer ekki…Lesa meira

true

Ýmsar breytingar til skoðunar á skólastarfi á Varmalandi

Á vettvangi fræðslunefndar og sveitarstjórnar Borgarbyggðar hefur síðustu misserin verið unnið að mótun tillagna um framtíð skólahalds á Varmalandi í Stafholtstungum. Þar er nú rekinn grunnskóli fyrir börn í 1.-10 bekk og eru nemendur 54 í vetur. Fjöldi barna við skólann hefur verið afar mismunandi á liðnum árum og sveiflur í nemendafjölda einkum verið í…Lesa meira

true

Mottumessa var haldin í Borgarneskirkju

Í gærkvöldi var Mottumessa haldin í Borgarneskirkju og var margt um manninn. Séra Heiðrún Helga Bjarnadóttir leiddi stundina og voru hennar áherslumál um samstöðu og stuðning við þá sem greinst hafa með krabbamein. Gísli Einarsson flutti hugvekju um mikilvægi hreyfingar áður en hann bað alla viðstadda kirkjugesti að standa upp og hreyfa á sér útlimi.…Lesa meira

true

Víkingur og Kári með góða sigra í Lengjubikarnum

Þrír leikir voru í Lengjubikarnum í knattspyrnu um helgina hjá liðunum af Vesturlandi. Niðurstaðan var tveir sigrar og eitt tap og gott gengi Vesturlandsliðanna  í Lengjubikarnum heldur áfram. Víkingur vann Árbæ Víkingur Ólafsvík og Árbær áttust við í B deild karla í riðli 2 og var leikurinn á laugardagskvöldið á gervigrasvelli Þróttara í Reykjavík. Ástþór…Lesa meira

true

Grundfirðingar Íslandsmeistarar í 4. deild kvenna í blaki

Ungmennafélag Grundarfjarðar varð Íslandsmeistari í meistaraflokki kvenna í blaki á sunnudaginn. Lið Grundarfjarðar var í fjórðu deild þetta árið og er mótafyrirkomulagið þannig að spilaðar voru þrjár mótshelgar í vetur. Síðasta mótahrinan var spiluð um liðna helgi og þar tryggðu grundfirsku stelpurnar sér Íslandsmeistaratitilinn og rétt til að spila í þriðju deild næsta vetur. Liðið…Lesa meira

true

Verslunin Sóley saumar opnuð í Ólafsvík

Síðastliðinn föstudag opnaði Sóley Jónsdóttir nýja verslun, Sóley saumar, að Ólafsbraut 19 í Ólafsvík. Að sögn Sóleyjar er hún með ýmsar vörur á boðstólum eins og prjónagarn,- og merki, tölur, skilti til að merkja póstkassa og fleiri vörur sem hún sker út í lazer prentara. „Einnig er ég með útsaumsvél þar sem ég get merkt…Lesa meira