Sóley framan við útsaumsvélina. Ljósmyndir: af

Verslunin Sóley saumar opnuð í Ólafsvík

Síðastliðinn föstudag opnaði Sóley Jónsdóttir nýja verslun, Sóley saumar, að Ólafsbraut 19 í Ólafsvík. Að sögn Sóleyjar er hún með ýmsar vörur á boðstólum eins og prjónagarn,- og merki, tölur, skilti til að merkja póstkassa og fleiri vörur sem hún sker út í lazer prentara. „Einnig er ég með útsaumsvél þar sem ég get merkt handklæði, rúmföt, húfur, peysur og derhúfur. Þá er ég einnig með prentara sem getur prentað út hvítt og mun bjóða upp á boli og bolla og fleira þegar frá líður.“ Sóley bætir við að það sé aldrei að vita hvernig þetta þróast og hvað bætist við í vöruframboðið.

Verslunin Sóley saumar opnuð í Ólafsvík - Skessuhorn