Varmaland í Borgarfirði. Ljósm. mm

Ýmsar breytingar til skoðunar á skólastarfi á Varmalandi

Á vettvangi fræðslunefndar og sveitarstjórnar Borgarbyggðar hefur síðustu misserin verið unnið að mótun tillagna um framtíð skólahalds á Varmalandi í Stafholtstungum. Þar er nú rekinn grunnskóli fyrir börn í 1.-10 bekk og eru nemendur 54 í vetur. Fjöldi barna við skólann hefur verið afar mismunandi á liðnum árum og sveiflur í nemendafjölda einkum verið í samræmi við fjölda nemenda og búsetu þeirra við Háskólann á Bifröst. Þegar mest var stunduðu 167 börn grunnskólanám á Varmalandi árið 2003. Svipaður fjöldi er nú samanlagt í öllum þremur deildum Grunnskóla Borgarfjarðar; á Varmalandi, Kleppjárnsreykjum og Hvanneyri.

Ýmsar breytingar til skoðunar á skólastarfi á Varmalandi - Skessuhorn