
Guðveig Eyglóardóttir, Eliza Reid forsetafrú og Sigursteinn Sigurðsson.
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi þátttakendur á fjárfestingahátíð
Dagana 12.-14. mars sl. fór fram fjárfestingahátíðin MIPIM í Cannes í Frakklandi. Hátíðin er með þeim stærstu sem haldin er í heiminum og eru rúmlega 20.000 þátttakendur sem koma víðs vegar að til að kynna og leita að fjárfestingarverkefnum. Í ár tóku landshlutasamtökin þátt í MIPIM og sendu SSV tvo fulltrúa, auk þess sem Þróunarfélagið á Grundartanga sendi tvo fulltrúa. Verkefnið var unnið í samstarfi við Íslandsstofu sem annaðist utanumhald og skipulag á viðburðinum. SSV tók virkan þátt í MIPIM ásamt hinum landshlutasamtökunum. Fóru fram margir fundir og samtöl um Vesturland og uppbyggingu þess og er þó nokkur áhugi á fjárfestingum almennt á Íslandi.