Veðrinu tekur að slota eftir miðnætti við Breiðafjörð og á Vestfjörðum

Appelsínugul viðvörun er í gildi á norðanverðum Vestfjörðum vegna snjókomu, hvassviðris og hættu á snjóflóðum. Gildir hún í allan dag og til klukkan 6 í fyrramálið.

Til miðnættis í kvöld gildir gul viðvörun fyrir Breiðafjörð vegna norðaustan 15-23 m/s og snjókomu. „Búast má við skafrenningi með takmörkuðu eða lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Afmarkaðar samgöngutruflanir eru líklegar og lokanir á vegum. Fólki er bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám,“ segir í tilkynningu frá Veðurstofunni.

Veðrinu tekur að slota eftir miðnætti við Breiðafjörð og á Vestfjörðum - Skessuhorn