Byssusýning framundan á Stokkseyri

Árleg byssusýning Veiðisafnsins á Stokkseyri verður laugardaginn 23. og sunnudaginn 24. mars frá kl. 11–18 í húsakynnum Veiðisafnsins við Eyrarbraut 49. „Hjálmar í Hlað og félagar sýna úrval skotvopna sem og búnað til skotveiða ásamt sjónaukum og aukabúnaði til sýnis og sölu. Kynntir verða rifflar frá Blaser, Sauer, haglabyssur frá Sauer og Blaser, einnig sjónaukar frá Zeiss og Blaser ásamt hljóðdeyfum frá Hausken, Freyr & Devik, endurhleðsluvörum og fl.  Einnig verður skothermir á staðnum,“ segir í tilkynningu.

Byssusýning framundan á Stokkseyri - Skessuhorn