Fréttir

true

Vegleg dagskrá á Vetrardögum sem hefjast á fimmtudaginn

Vetrardagar verða haldnir hátíðlegir á Akranesi um næstu helgi, frá fimmtudegi til sunnudags. Fjölbreyttir og áhugaverðir viðburðir verða í gangi alla dagana sem og skemmtilegar smiðjur fyrir allan aldur. Skessuhorn heyrði í Veru Líndal Guðnadóttur sem er verkefnastjóri menningar- og safnamála hjá Akraneskaupstað. Hvernig hefur undirbúningurinn gengið? „Undirbúningur hefur gengið vel, það er ánægjulegt að…Lesa meira

true

Fyrsta tap Skagakvenna og fyrsti sigur Skallagríms í Lengjubikarnum

ÍA og Fram áttust við í B deild kvenna í knattspyrnu í hádeginu á laugardaginn og var viðureignin í Akraneshöllinni. Alda Ólafsdóttir kom gestunum yfir á 8. mínútu og Sara Svanhildur Jóhannsdóttir sá til þess að Fram var með tveggja marka forystu í hálfleik. Ekkert gekk hjá heimakonum að minnka muninn í seinni hálfleik fyrr…Lesa meira

true

Heimila mastur til vindrannsókna á Grjóthálsi

Á fundi sínum í byrjun mánaðarins samþykkti skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar samhljóða að reist verði tímabundið mælimastur til vindrannsókna á Grjóthálsi í landi Sigmundarstaða í Þverárhlíð. Mastrið sem um ræðir er stálgrindarmastur, þríhyrnt með 48 cm breiðum hliðum. Mastrið er allt að 98 metra hátt með stögum sem ná allt að 60 metra út frá…Lesa meira

true

Næsta úthlutun úr Minningarsjóði Heimis Klemenzsonar

Opið er fyrir tillögur og umsóknir í minningarsjóð Heimis Klemenzsonar. Að því tilefni óskar stjórn sjóðsins eftir tilnefningum um ungt og efnilegt tónlistarfólk úr Borgarfirði. Gert er ráð fyrir að tónlistarfólkið sé komið í framhaldsnám eða sambærilegt nám/tónsköpun. „Tilnefningar/umsóknir ásamt upplýsingum um viðkomandi tónlistarfólk sendist á netfangið  minningarsjodurheimis@gmail.com fyrir 5. apríl næstkomandi. Minningarsjóður Heimis Klemenzsonar…Lesa meira

true

Bilun varð í klórskammtara í Jaðarsbakkalaug

Fimmtudaginn 7. mars varð bilun í klórbúnaði sem tengist nuddpottinum í sundlauginni á Jaðarsbökkum á Akranesi. Virðist klórdæla hafa dælt út of miklum klór, sem valdið getur meðal annars ertingu á húð og skemmdum á sundfatnaði. Búið er að loka pottinum og unnið er að bilunarleit. Þeir sem kenna sér meins er bent á að…Lesa meira

true

Landað á háflóði í Grundarfirði – Myndir

Það var ansi mikil sjávarhæð þegar starfsmenn Djúpakletts voru að landa úr Runólfi SH snemma í morgun. Stórstreymt var á þessum tíma þar sem að sjávarhæð náði 4,6 metrum í Grundarfjarðarhöfn klukkan 07:30. Bátarnir gnæfðu tignarlega yfir höfnina og ansi mikill halli var á landgöngum skipanna.Lesa meira

true

Skallagrímur vann ÍA eftir framlengingu

Vesturlandsslagur ÍA og Skallagríms í 1. deild karla í körfu fór fram fyrir fullu húsi á Jaðarsbökkum á Akranesi á föstudagskvöldið. Það var mikið í húfi fyrir utan montréttinn því liðið sem myndi ná sigri væri með aðra höndina á heimaleikjaréttinum í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Það var tekist hart á frá byrjun leiks og liðin…Lesa meira

true

Mikil sala eldisfisks í byrjun árs

Framleiðsla og útflutningur á eldisafurðum hefur farið afar vel af stað í byrjun árs. Í Radarnum, vefriti SFS, kemur fram að á fyrstu tveimur mánuðum ársins er útflutningsverðmæti eldisafurða komið í 13,3 milljarða og er það langhæsta upphæð á þessu tímabili frá upphafi. Útflutningsverðmæti eldisafurða í janúar og febrúar er þannig 35% hærri en frá…Lesa meira

true

Snæfell vann mikilvægan sigur gegn Hrunamönnum

Snæfell tók á móti Hrunamönnum í Stykkishólmi á föstudaginn í fyrstu deildinni í körfu. Fyrir leikinn voru Hrunamenn með 6 stig í 11. sæti deildarinnar en Snæfell með 4 stig í 12. sæti. Hrunamenn unnu fyrri leik liðana með sex stigum og þurfti Snæfell því að vinna með sjö stigum eða meiru til að vinna…Lesa meira

true

Línubátur þurfti að millilanda því slík voru aflabrögðin

„Þetta eru bara algjört rugl aflabrögð,“ sögðu skipverjar á Gísla Súrssyni GK og Indriða Kristins BA þegar þeir voru að landa í Ólafsvík í gær. Emanúel Magnússon skipstjóri á Gísla Súrssyni GK, sem Einhamar frá Grindavík gerir út, sagði að þeir hefðu aðeins dregið helminginn af þeim 19 þúsund krókum sem þeir að jafnaði leggja…Lesa meira