
Frá sundlauginni á Jaðarsbökkum. Ljósm. vaks
Bilun varð í klórskammtara í Jaðarsbakkalaug
Fimmtudaginn 7. mars varð bilun í klórbúnaði sem tengist nuddpottinum í sundlauginni á Jaðarsbökkum á Akranesi. Virðist klórdæla hafa dælt út of miklum klór, sem valdið getur meðal annars ertingu á húð og skemmdum á sundfatnaði. Búið er að loka pottinum og unnið er að bilunarleit. Þeir sem kenna sér meins er bent á að hafa samband við lækni.