Vera Líndal Guðnadóttir. Ljósm. Guðni Hannesson

Vegleg dagskrá á Vetrardögum sem hefjast á fimmtudaginn

Vetrardagar verða haldnir hátíðlegir á Akranesi um næstu helgi, frá fimmtudegi til sunnudags. Fjölbreyttir og áhugaverðir viðburðir verða í gangi alla dagana sem og skemmtilegar smiðjur fyrir allan aldur. Skessuhorn heyrði í Veru Líndal Guðnadóttur sem er verkefnastjóri menningar- og safnamála hjá Akraneskaupstað. Hvernig hefur undirbúningurinn gengið? „Undirbúningur hefur gengið vel, það er ánægjulegt að sjá hvað við erum rík af metnaðarfullu og skapandi fólki sem vill auka veg menningar í bæjarfélaginu og taka þátt í menningarviðburðum kaupstaðarins. Menningarstofnanir bæjarins ásamt íþróttahreyfingunni eru einnig mannaðar af skapandi og kraftmiklum einstaklingum sem leggja sig fram við að bjóða bæjarbúum upp á fjölbreytta afþreyingu yfir Vetrardaga.“

Vegleg dagskrá á Vetrardögum sem hefjast á fimmtudaginn - Skessuhorn