
Runólfur SH, Sigurborg SH og Farsæll SH liggja við landfestar og verið er að landa úr Runólfi. Ljósmyndir: tfk
Landað á háflóði í Grundarfirði – Myndir
Það var ansi mikil sjávarhæð þegar starfsmenn Djúpakletts voru að landa úr Runólfi SH snemma í morgun. Stórstreymt var á þessum tíma þar sem að sjávarhæð náði 4,6 metrum í Grundarfjarðarhöfn klukkan 07:30. Bátarnir gnæfðu tignarlega yfir höfnina og ansi mikill halli var á landgöngum skipanna.