
Gísli Súrsson GK kemur drekkhlaðinn að landi í Ólafsvík. Ljósmyndir: af
Línubátur þurfti að millilanda því slík voru aflabrögðin
„Þetta eru bara algjört rugl aflabrögð,“ sögðu skipverjar á Gísla Súrssyni GK og Indriða Kristins BA þegar þeir voru að landa í Ólafsvík í gær. Emanúel Magnússon skipstjóri á Gísla Súrssyni GK, sem Einhamar frá Grindavík gerir út, sagði að þeir hefðu aðeins dregið helminginn af þeim 19 þúsund krókum sem þeir að jafnaði leggja í hverri lögn og hafi þeir orðið að fara í land til þess að landa aflanum sem þá var 18 tonn. Svo var farið aftur út eftir fyrri löndun til að draga restina af krókunum. Um miðnættið komu þeir svo að landi og lönduðu þá 14 tonnum til viðbótar. Afli gærdagsins var því 32 tonn.