Fréttir

true

Jafntefli hjá ÍA og Víkingi R. í Lengjubikarnum

ÍA fékk Víking Reykjavík í heimsókn í Akraneshöllina í gærkvöldi í fjórðu umferð í riðli 4 í A deild Lengjubikarsins í knattspyrnu karla. Fyrir leik voru Skagamenn í 2. sæti með sex stig og Víkingur með fimm stig í 4. sæti. Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik en Árni Marinó Einarsson markvörður ÍA varði…Lesa meira

true

Fjármálaráðherra ásælist túnin á Brekku

Í kröfum fjármálaráðherra fyrir hönd óbyggðanefndar, sem ber yfirskriftina eyjar og sker, er ríkið ekki einvörðungu að gera kröfur um eyjar, sker og hólma utan við strandlengjuna. Gerðar eru kröfur um land langt inni í landi sem svo óheppilega vill til að bera nafn með endingunni “ey” eða “hólmi”. Sem dæmi er gerð krafa í…Lesa meira

true

Rafmagnstruflanir víða í morgun

Í morgun varð rof á afhendingu rafmagns á nokkrum stöðum í Borgarbyggð, samkvæmt upplýsingasíðu Rarik. Svo virðist sem allir staðir séu komnir að nýju með rafmagn. Straumlaust varð í Borgarnesi frá klukkan 08-9:15, í Reykholtsdal á sama tíma, á Mýrum klukkan 7 í morgun og við Skeljabrekku í Andakíl frá klukkan 7:30 til 9:15. Ekki…Lesa meira

true

Aron Ingi Íþróttamaður Snæfells 2023

Körfuknattleiksmaðurinn Aron Ingi Hinriksson hefur verið valinn Íþróttamaður Snæfells fyrir árið 2023. Þetta var tilkynnt í hálfleik Snæfells og Fjölnis í Subway deild kvenna í körfuknattleik á þriðjudagskvöldið. „Aron Ingi hefur í gegnum tíðina lagt mikið á sig til þess að spila fyrir Snæfell. Hann lék með Snæfelli á meðan hann lærði rafvirkjann á höfuðborgarsvæðinu…Lesa meira

true

Snorrastofa í samstarf við Háskólann í Tbilisi í Georgíu

Guðni Th Jóhannesson forseti Íslands fer í opinbera heimsókn til Georgíu í fyrstu viku marsmánaðar og verður Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu, í sendinefnd Íslands í heimsókninni. Miðvikudaginn 6. mars mun Bergur undirrita samstarfssamning við Skandinavíudeild Háskólans í Tbilisi (Center for Scandinavian Studies) að viðstöddum forsetanum, sem í kjölfarið flytur fyrirlestur við skólann. „Markmiðið með samningnum…Lesa meira

true

Setur stefnuna á Ólympíuleikana

Guðrún Karítas bætir þessa dagana Íslandsmet í hverju kasti Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir er 22 ára og frá Vatnshömrum í Andakíl. Hún byrjaði ung að æfa íþróttir og var öflug í fótbolta, körfubolta og frjálsum íþróttum. Hún æfði kúluvarp á yngri árum en vill þó meina að hún hafi ekki verið sérlega góð í greininni. „Ég…Lesa meira

true

Lögreglan kom í heimsókn

Í síðustu viku kom lögreglan í heimsókn í leikskólann Skýjaborg í Hvalfjarðarsveit. Hún átti gott spjall við elstu tvo árgangana í leikskólanum um mikilvægi þess að nota bílstólinn sinn, vera í bílbelti og nota endurskinsmerki. Börnin fengu mynd af lögreglu og börnum til að lita. Að lokum gaf hún öllum börnum í leikskólanum endurskinsmerki svo…Lesa meira

true

Lifir drauminn á Mýrunum

Rætt við Eyrúnu Eyþórsdóttur í Leirulækjarseli „Við ætlum okkur að verða gömul saman þarna. Þó ég haldi ennþá annað heimili í Reykjavík þá fer ég upp á Mýrar allar helgar, í fríum og stundum renni ég upp eftir á virkum dögum líka. Ég er með frábæra vinnuaðstöðu þar og útsýnið er sjúklegt. Það er alveg…Lesa meira

true

Snæfell skráði sig úr leik um sæti í úrslitakeppninni

Snæfell og Fjölnir áttust við í 3. umferð B deildar kvenna í Subway deildinni í körfuknattleik í gærkvöldi og var viðureignin í Stykkishólmi. Leikurinn var mjög mikilvægur í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni en fyrir leik var Fjönir með sex stig og Snæfell fjögur. Leikurinn fór frekar rólega af stað, staðan var 9-8 Snæfelli í…Lesa meira

true

ÞÞÞ og KFÍA gera samning til þriggja ára

Bifreiðastöð ÞÞÞ á Akranesi og Knattspyrnufélag ÍA hafa undirritað samstarfssamning til þriggja ára. Þetta kemur fram á FB síðu félagsins en ÞÞÞ hefur verið einn af helstu styrktaraðilum KFÍA frá því að elstu menn muna og stuðningurinn verið ómetanlegur eins og segir í fréttinni. „Bifreiðastöð ÞÞÞ hefur reynt að standa þétt við bakið á íþróttastarfinu…Lesa meira